F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Vogabyggð 2. Dugguvogur. Gatnagerð og lagnir, útboð nr. 15277
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 15:00 þann 20. júlí 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 6. ágúst 2021.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur.
Lýsing á verkefninu:
Framkvæmdin felur í sér gatnagerð, lagnavinnu og yfirborðsfrágang í Dugguvogi.
Helstu verkþættir:
- Rif núverandi yfirborðs
- Jarðvegsskipti í götu, gangstéttum og bílastæðum
- Steyptur stoðveggur og stálrimlagirðing
- Gröftur og lagning fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagna.
- Götulýsing
- Yfirborðsfrágangur, malbik og hellulögn
- Gróður
Helstu magntölur:
- Upprif malbiks og hellulagnar 3.950 m2
- Gröftur 10.000 m3
- Fleygun 500 m3
- Fylling 5.770 m3
- Malbikun 4.000 m2
- Hellulagnir 1.835 m2
- Gróður 409 stk.
- Stoðveggur 120 m3
- Stálrimlagirðing 115 m
- Fráveitulagnir 630 m
- Kaldavatnslagnir 390 m
- Hitaveita 526 m
- Raflagnir 1.800 m
- Fjarskiptalagnir 500 m
- Uppsetning nýrra ljósastólpa 20 stk
Helstu dagsetningar:
- Lok framkvæmdatíma 15.9.2022
- 1. áfangi 15.12.2021
- 2. áfangi 15.9.2022