Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Þjónusta iðnaðarmanna – Málningarvinna
Verkið felst í að þjónusta reglulega málningarvinnu á vegum sveitarfélagsins. Um er að ræða rammasamning við einn aðila til að leysa tilfallandi viðhalds- og þjónustuverkefni fyrir mannvirki bæjarfélagsins
Helstu magntölur eru:
- Tímavinna allt að 2.200 klst. á samningstímanum
- Mismunandi málaðir fletir, 7.700 m2 á samningstímanum
Útboðsgögn verða einungis aðgengileg á rafrænu formi hér á vefsíðu Garðabæjar.
Helstu dagsetningar:
- Afhending tilboða fyrir kl 14:30 þann 6. júlí 2021.
- Upphaf samnings 1.ágúst 2021.
Samningstími er tvö ár með mögulegum framlengingum tvisvar sinnum til eins árs í senn.
Tilboð skal afhenda á skrifstofu Strendings ehf, verkfræðiþjónustu, Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði, fyrir kl. 14:30 þriðjudaginn 6. júlí 2021.Tilboð verða opnuð á rafrænum opnunarfundi sama dag kl 15:00
Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar.