Home Fréttir Í fréttum 20.07.2021 Vetrarþjónusta: Rangárvallasýsla og Flói 2021-2024

20.07.2021 Vetrarþjónusta: Rangárvallasýsla og Flói 2021-2024

103
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir á tilteknum leiðum  í Rangárvallasýslu og Flóa 2021-2024.

<>

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar til tveggja ára eitt ár í senn.

Heildarlengd vegakafla er 251 km.

Akstur vörubíla á snjómokstursleiðunum er áætlaður 43.000 km. á ári.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með sunnudeginum 20. júní 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. júlí 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

 

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.