Home Fréttir Í fréttum Vinnuslys varð í Grímsnesi sl. fimmtudag þegar maður féll af vörubílspalli

Vinnuslys varð í Grímsnesi sl. fimmtudag þegar maður féll af vörubílspalli

138
0

Vinnuslys varð í Grímsnesi sl. fimmtudag þegar maður féll af vörubílspalli eftir að rafmagnsvír hafði slegist utan í hann. Verið var að draga inn rafmagnsvír á kefli sem var á vörubílspallinum. Vírinn festist og þegar um hann losnaði slóst hann í manninn sem féll af pallinum um tvo metra. Eftir fallið átti maðurinn erfitt um hreyfingu og var fluttur með sjúkrabifreið á heilsugæsluna á Selfoss. Ekki er vitað á þessari stundu um meiðsli mannsins. Starfsmaður Vinnueftirlitsins kom á vettvang til rannsóknar.

Heimild: Sunnlenska.is

Previous articleÁkveðið hefur verið að ráðast í framkvæmdir til að stækka höfnina í Norðurfirði
Next article„Ekki fyrir venjulegan Íslending að kaupa sér íbúð á þessu háa verði“