Home Fréttir Í fréttum Fimm mánaða skilorðsbundinn dómur fyrir að stefna lífi verkamanna í hættu

Fimm mánaða skilorðsbundinn dómur fyrir að stefna lífi verkamanna í hættu

106
0
Tuttugu og fjórir verkamenn frá Austur-Evrópu bjuggu í húsnæðinu og hafðist hluti þeirra við í litlum timburkössum sem voru metnir auðbrennanlegt drasl af skökkviliði. VÍSIR/VILHELM

Eigandi starfsmannaleigunnar 2findjob var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stefna lífi og heilsu á þriðja tugar erlendra starfsmanna sinna í hættu með því að hýsa þá í hættulegu húsnæði á Smiðshöfða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

<>

Þorkell Kristján Guðgeirsson var ákærður fyrir svonefnt hættubrot og brot gegn lögum um brunavarnir í málinu sem er talið það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.

Hann lét smíða búseturými, sem fulltrúar slökkviliðsins lýstu sem „svefnskápum“, fyrir erlenda starfsmenn starfsmannaleigu sinnar í iðnaðarhúsnæði að Smiðshöfða 7 þar sem brunavarnir voru ekki til staðar eða þeim verulega áfátt.

Eftirlitsmenn sem skoðuðu húsnæðið að beiðni lögreglu í febrúar 2018 töldu bráða íkveikjuhættu í húsinu.

Við aðalmeðferð málsins sagði Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu, að það væri í „sama kálgarði“ og bruninn mannskæði á Bræðraborgarstíg í Reykjavík í fyrra.

„Við gerðum þetta í algerri neyð“

Í ákæru var Þorkatli Kristjáni gefið að sök að hafa með þessu stefnt lífi og heilsu 24 starfsmanna leigunnar í augljósa hættu í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt.

Starfsmennirnir eru taldir hafa dvalið í húsnæðinu um þriggja mánaða skeið frá lokum árs 2017 fram á árið 2018.

Þorkell Kristján tók ekki beina afstöðu til sakarefnisins við þingfestingu eða aðalmeðferð málsins.

Þar sagði hann málið of „flókið“ til að hann gæti svarað já eða nei. Hafnaði hann því að hafa hagnast fjárhagslega á húsnæðinu.

Bar Þorkell Kristján við húsnæðisskorti sem ástæðu fyrir því að hýsa starfsmennina við þessar aðstæður við aðalmeðferðina.

Fullyrti hann að búsetuúrræðið hefði aðeins verið til algerra bráðabirgða og að til hafi staðið að flytja starfsmennina annað einmitt þegar lögregla kom fyrst á staðinn. „Við gerðum þetta í algerri neyð,“ sagði hann.

Fulltrúi slökkviliðsins sem gaf skýrslu við aðalmeðferðina sagði þó að þeir erlendu starfsmenn sem voru í húsinu þegar lögreglu og slökkvilið bar að garði hefðu sagt að verið væri að smíða fleiri svefnskápa og að fleiri starfsmenn væru væntanlegir til dvalar þar.

Starfsmannaleigan 2findjob ehf. var úrskurðuð gjaldþrota í apríl árið 2019 og félag hans Smíðaland sem leigði húsnæðið fór sömu leið það ár.

Þorkell Kristján er búsettur í Noregi og gaf skýrslu við aðalmeðferðina í gegnum fjarfundarbúnað.

Dómurinn hefur ekki verið birtur enn á vef Héraðsdóms Reykjavíkur.

Fangelsisrefsingin er skilorðbundin til tveggja ár og var Þorkell Kristján jafnframt dæmdur til að greiða málsvarnarlaun sem nema rúmri milljón króna.

Heimild: Visir.is