Home Fréttir Í fréttum Niðurrif á húsi Íslandsbanka tefst fram á haust

Niðurrif á húsi Íslandsbanka tefst fram á haust

158
0
Mynd: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir - RÚV
Vinna stendur enn yfir við deiliskipulag reitsins þar sem fyrrum höfuðstöðvar Íslandsbanka við Kirkjusand standa.
Sótt hefur verið um leyfi til að rífa húsið en líklegast verður ekki af því fyrr en í haust.

Húsið, sem upphaflega hýsti hraðfrystistöðvar, hefur staðið autt frá því að bankinn flutti höfuðstöðvar sínar í Kópavog árið 2017 eftir 22 ár við Kirkjusand.

<>

Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, segir í samtali við fréttastofu að ferlið hafi gengið hægar en vonast var eftir.

Fyrr á árinu var greint frá því að verðlaunatillaga um deiliskipulag hafi verið kynnt skipulagsráði Reykjavíkur og talið var að niðurrif gæti hafist síðsumars. Íslandssjóðir stýra uppbyggingu á svæðinu.

Borgin gefur, að sögn Kjartans, ekki grænt ljós á niðurrif fyrr en skipulagið hefur verið samþykkt.

Nú sé gert ráð fyrir að hægt verði að kynna skipulagið í haust og hefja niðurrifið þar á eftir. Eins og staðan sé í dag sé ekki hægt að segja nánar til um tímasetningu.

Heimild: Ruv.is