Home Fréttir Í fréttum 06.07.2021 Hringvegur (1) um Hornafjörð (EES)

06.07.2021 Hringvegur (1) um Hornafjörð (EES)

241
0
Fyrirhuguð brú yfir Hornafjarðarfljót.

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í framkvæmd og fjármögnun verksins „Hringvegur (1) um Hornafjörð“. Framkvæmdin er í sveitarfélagi Hornafjarðar, Austur-Skaftafellssýslu.

<>

Verkið felst í breyttri legu Hringvegar (1) um Hornafjörð og kemur til með að fækka einbreiðum brúm á Hringvegi (1) um þrjár og stytta hann um 12 km.

Hringvegur um Hornafjarðarfljót, tölvuteikning.

Verktaki skal, auk byggingu mannvirkja, fjármagna verkið að hluta til lengri tíma (20-30 ár).

Verktími framkvæmdarinnar er áætlaður allt að þremur árum.

Verkinu er skipt í fimm verkhluta:

Verkhluti 8.01 er gerð nýs Hringvegar (1) frá stöð 0 rétt vestan Hólmsvegar (9822) að stöð 18760 vestan Dynjandisvegar (9721) ásamt tengivegum og tengingum.
Verkhluti 8.02 er smíði 52 m langrar brúar á Djúpá.
Verkhluti 8.03 er smíði 250 m langrar brúar á Hornafjarðarfljót.
Verkhluti 8.04 er smíði 114 m langrar brúar á Hoffellsá
Verkhluti 8.05 er smíði 52 m langrar brúar á Bergá.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með sunnnudeginum 6. júní 2021.

Frestur til að skila inn umsókn um þátttöku í innkaupaferlinu og staðfestingu á hæfisskilyrðum skal skilað rafrænt á TendSign fyrir klukkan 14:00 þriðjudaginn 6. júlí 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur.

Útboðið er auglýst á Evróska efnahagssvæðinu.