Home Fréttir Í fréttum Endurbætur á fráveitukerfi Seltjarnarnesbæjar

Endurbætur á fráveitukerfi Seltjarnarnesbæjar

74
0
Mynd: Seltjarnarnesbær

Endurbætur á fráveitu Seltjarnarnesbæjar hafa verið í gangi um nokkurra ára skeið og er nokkrum úrbótum ólokið auk þess sem stækkun byggðar við Bygggarða krefst endurbóta og nýframkvæmda en búið er að greina þörfina´því tengt.

<>

Í sumar verður haldið áfram með framkvæmdir og verður lögð ný þrýstilögn frá dælubrunninum meðfram Norðurströndinni og alla leið að dælustöð Veitna við Seylugranda.

Stóru rörin sem liggja við Norðurströndina verða nýtt í endurbæturnar. Stórar vinnuvélar verða á svæðinu vegna framkvæmdarinnar og því má gera ráð fyrir röskun þegar að vinnan stendur yfir sem beðist er velvirðingar á.

Heimild: Seltjarnarnesbær