F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:
Umferðaröryggisaðgerðir 2021, útboð nr. 15215
Verkið felur í sér framkvæmdir vegna umferðaröryggisaðgerða í Reykjavík. Um er að ræða nýjar upphækkaðar gönguleiðir og endurgerð eldri, nýjar gönguþveranir, gróðursetningu runna og trjáa, nýjar göngustígatengingar, auk uppsetningu á ljósastaurum vegna gangbrautarlýsingar með tilheyrandi jarðvinnu, skurð- og strenglögnum ásamt yfirborðsfrágangi.
Helstu magntölur útboðsins eru:
Uppúrtekt 600 m3
Bergskeringar 150 m3
Fyllingar 600 m3
Malbikun 750 m2
Hellulögn 1250 m2
Steyptar gangstéttar 100 m2
Strengskurðir 140 m3
Uppsetning ljósastaura 45 stk
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00 þann 26. maí 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 2. júní 2021.