
Á vef Akraneskaupstaðar er sagt frá því að föstudaginn 7. maí síðastliðinn hafi verið skrifað undir verksamning vegna uppsteypu og utanhússfrágangs á nýju leikskólahúsnæði við Asparskóga 25.
Sjammi ehf er verktaki og mun Verkís hafa umsjón með verkinu fyrir hönd Fasteignafélags Akraneskaupstaðar. Verkefnið snýst um byggingu á um 1500 fermetra leikskóla úr forsteyptum einingum.
Hluti af verkinu felst í að koma fyrir lögnum í grunni, setja í glugga og hurðir ásamt því að ganga frá þaki og ljúka öllum utanhússfrágangi við bygginguna.
Áætlað er að verklok séu eigi síðar en 1. mars 2022.
Heimild: Skessuhorn.is