Home Fréttir Í fréttum Hófu í nótt gerð varnargarða við gosstöðvarnar

Hófu í nótt gerð varnargarða við gosstöðvarnar

212
0
Jarðýtan að störfum. MYND/HAFÞÓR INGI

Stór jarðýta hófst handa við það í nótt að ryðja upp varnargörðum við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli.

<>

Görðunum er ætlað að reyna að hefta för hauntungunnar niður í Nátthaga, en þaðan er leiðin greið niður á Suðurstrandarveg með tilheyrandi tjóni á innviðum og röskun á samgöngum.

Að sögn lögreglunnar á Suðurnesum var hafist handa við verkið í nótt en þar á bæ höfðu menn ekki upplýsingar um hvernig til hafi tekist.

Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur sagði í samtali við fréttastofu í gær áhyggjuefni ef hrauntaumur rynni niður í Nátthaga og Bæjarráð Grindavíkur ályktaði í síðustu viku um að gera þyrfti allt sem mögulegt væri til þess að hefta framrás hraunsins í þá áttina.

Heimild: Visir.is