Uppsteypa og frágangur að utan Dalskóli 1. áfangi, leikskóli nýbygging – Útboð nr. 13583.
Verkið felst í uppsteypu, botnlagna, fullnaðarfrágangi að utan ásamt gluggaísetningu nýrrar leikskólabyggingar á reit nýs Dalsskóla í Úlfarsárdal. Leikskólabyggingin er sunnan við Úlfarsbraut og austan við núverandi Dalsskóla í Úlfarsárdal.
• Fyrirspurnatíma lýkur: 6 október 2015 kl. 16:00.
• Svarfrestur rennur út: 8. október 2015.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
• Steypumót – 2.600 m2
• Járnbending – 60 tonn
• Steinsteypa – 550 m3
• Frárennslislagnir – 450 lm
• Frárennslisbrunnar – 5 stk
• Sökkulskaut – 235 lm
• Rafmagnsrör í steypu – 3.500 lm
• Gluggar og hurðir – 125 m2
• Einangrun og klæðning útveggja – 562 m2
• Handrið á þaki – 146 m2
• Einangrun og yfirborðsfrágangur viðsnúinna þaka – 765 m2
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á 3.000 kr. frá kl. 13:00 mánudaginn 28. september 2015 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1.hæð, 105 Reykjavík.
Opnun tilboða: Miðvikudaginn 14. október 2015 kl. 10:00, í Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Tilboðum skal skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar.