Reykjanesbær – Umhverfissvið útboð í niðurrif og endurgerð núverandi tengibyggingar milli tveggja bygginga í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ og endurbyggja glerskála.
Verktaki tekur að sér að setja upp mannhelda öryggisgirðingu umhverfis verkstað, rífa núverandi tengibyggingu niður að gólfplötu/sökkli.
Tengibygging er timburhús með steyptu bíslagi, timburgluggum og þakviðir eru úr timbri. Loftaklæðning innandyra er úr timbri og dúkur er á gólfum.
Eftir rif skal reisa nýja tengibyggingu með burðarbitum úr límtré, koma fyrir glerveggjum/panelum, einingaþaki, steypa nýjan ramp og ljúka fullnaðarfrágangi innanhúss. Til frágangs innanhúss telst t.d. til að fræsa gólfhitalögn í gólfplötu, flota, leggja gólfefni, klæða loft, leggja raflögn og fl.
Tilboð verktaka skal miðast við að verkið feli í sér fullnaðarfrágang utanhúss og innanhúss.
- Afending útboðsgagna 05.2021 kl 12:00
- Kynningarfundur Verður ekki haldin
- Fyrirspurnatíma lýkur 05.2021 kl 14:00
- Svarfrestur rennur út 05.2021 kl 14:00
- Skilafrestur tilboða 05.2021 kl 14:00
- Opnunartími tilboða 05.2021 kl: 14:01
- Upphaf framkvæmdatíma Við töku tilboðs
- Lok framkvæmdatíma 08.2021
Þar sem um rafrænt útboð er að ræða verður ekki haldin formlegur opnunarfundur en tilboðsgjafar fá senda opnunarfundargerð þar sem fram kemur: Hverjir sendu inn tilboð, tilboðsupphæð, kostnaðaráætlun.
Þeir sem áhuga hafa á að gera tilboð í verkið geta fengið útboðsgögn send með því að senda ósk þar um í tölvupósti á tölvupóstfangið innkaupastjori@reykjanesbaer.is . Vinsamlega tilkynnið nafn fyrirtækis, tengilið, símanúmer og tölvupóstfang með beiðninni.