Home Fréttir Í fréttum 12.05.2021 Mánagarður, endurgerð lóðar 2021

12.05.2021 Mánagarður, endurgerð lóðar 2021

128
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:

<>

Mánagarður endurgerð lóðar 2021, útboð nr. 15179

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið er endurgerð lóðar leikskólans Mánagarðs við Eggertsgötu 34, 102 Reykjavík.  Um er að ræðir alla lóð leikskólans um það bil 1.540 m².  Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á allri lóðinni. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Vaktin er sérstök athygli á því að umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar (USK)  er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi í samræmi við ISO 14001 og því er óskað eftir að þjónustuaðilar og verktakar fari eftir þeim reglum sem sviðið hefur sett fyrir þá sem vinna verk í þágu sviðsins eða á vegum þess.

Þar sem framkvæmdir fara fram að hluta til á leikskólatíma, skal verktaki taka fullt tillit til þeirrar starfssemi.  Þetta á bæði við um umferð og hávaða vegna vinnu og vinnuvéla.  Hann skal sjá til þess að vinnusvæði sé afgirt og umferð vinnuvéla utan afgirts vinnusvæðis eigi sér ekki stað án þess að aðstoðarmaður gæti þess að engin börn séu í hættu.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 27. apríl 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 12. maí 2021.