Home Fréttir Í fréttum Veitur meta lægra kolefnisspor verktaka í útboðum

Veitur meta lægra kolefnisspor verktaka í útboðum

226
0
Mynd: Veitur.is

Veitur hafa tekið ákvörðun um að leggja meiri áherslu á umhverfismál í vali á verktökum á vegum fyrirtækisins og stuðla þannig að orkuskiptum í framkvæmdum.

<>

Skilyrði verða sett í útboðslýsingar er fá verktaka til að huga enn frekar að umhverfismálum og aðgerðum til að minnka kolefnisspor sitt.

Einnig geta umhverfisþættir sem leiða af sér minna kolefnisspor framkvæmda vegið allt að 20% þegar tilboð eru metin.

Markmiðið með þessari nýjung er að lækka kolefnisspor framkvæmda á vegum Veitna og um leið verktaka á þeirra vegum.

Þetta er í samræmi við umhverfisstefnu Veitna um stöðugar umbætur í umhverfismálum og því markmiði fyrirtækisins að verða kolefnishlutlaust árið 2030.

Í öllum útboðum Veitna hér eftir geta verktakar fengið stig fyrir ákveðna umhverfisþætti sem skilgreindir eru fyrir hvert verkefni, svo sem fyrir að nota bifreiðar og vinnuvélar sem nýta eingöngu umhverfisvæna orku og, ef jarðefnaeldsneyti er notað, fyrir að uppfylla ákveðnar lágmarkskröfur um mengunarvarnabúnað sem fram koma í stöðlum European Emission Standards.

Einnig geta verktakar fengið stig fyrir að útbúa og vinna eftir sinni eigin umhverfisáætlun. Í henni eiga að vera upplýsingar um notkun jarðefnaeldsneytis ásamt áætlun um hvernig dregið verði úr notkun þess í verkefnum Veitna, flokkun úrgangs, aðrar orkusparandi aðgerðir, viðbrögð ef mengunarslys verður sem og upplýsingar um notkun á hættulegum efnum. Verktakar skulu einnig  vinna að því að minnka kolefnisspor sitt með öðrum leiðum, t.d. með umhverfisvænum innkaupum eða með kolefnisjöfnun.

Hvatning til verktaka

Til lengri tíma er ávinningurinn af þessum breytingum umtalsverður. Í þeim felst hvatning til verktaka til að huga að umhverfismálum í framkvæmdum og nýta nýrri tæki og vistvæna orkugjafa. Það lækkar hjá þeim kostnað til lengri tíma og kemur umhverfinu til góða.

Á sama tíma stuðla breytingarnar að auknum innflutningi á tækjum og búnaði sem uppfylla umhverfiskröfur sem eykur úrval umhverfisvænna kosta fyrir alla verktaka landsins.

Veitur gera ráð fyrir að lægri eldsneytiskostnaður muni með tímanum skila sér í lægri tilboðum í verkefni fyrirtækisins. Betri upplýsingagjöf frá verktökum í umhverfisáætlun gefur Veitum einnig færi á að reikna kolefnisspor framkvæmda á sínum vegum, og þar með fyrirtækisins alls, á nákvæmari hátt en verið hefur til þessa.

Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna:

„Við hjá Veitum höfum sett okkur metnaðarfull markmið í loftslagsmálum. Þeim verður ekki  náð nema fyrirtækið stýri sinni loftslagstengdu áhættu og beiti áhrifum sínum í virðiskeðjunni til ábyrgrar umgengni við umhverfið.

Veitur eru fimmti stærsti framkvæmdaaðili landsins sé mið tekið af þeim fjárhæðum sem verja á í fjárfestingar á Íslandi í ár. Stærðinni fylgir ákveðinn slagkraftur sem nýta má til góðs í loftslagsmálum og það viljum við gera.

Við hlökkum til að vinna eftir þessu nýja fyrirkomulagi og munum leitast við að vera í góðu samstarfi við alla þá er koma að þeim umfangsmiklu framkvæmdum sem uppbygging og rekstur veitukerfanna krefst á hverju ári.“

Heimild: Veitur.is