Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í endurbætur á B álmu og inngarði í Lundarskóla á Akureyri auk endurbóta á þaki og þakrými samkvæmt útboðsgögnum.
Um er að ræða um 2.000 m² í endurbótum og 800 m² uppbyggingu á inngarði.
Framkvæmdatíminn er frá júní 2021 til 15. maí 2022.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á útboðsvef Akureyrarbæjar, frá og með 13. apríl 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg í tenglinum hérna fyrir neðan:
“Lundarskóli – útboð á endurbótum á B álmu og inngarði”
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 11.00 fimmtudaginn 6. maí 2021 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.