Home Fréttir Í fréttum 21.04.2021 Sveitarfélagið Vogar. ” Miðsvæði – Yfirborðsfrágangur Gangstéttar –...

21.04.2021 Sveitarfélagið Vogar. ” Miðsvæði – Yfirborðsfrágangur Gangstéttar – Gangstígar – Kantsteinar – Þökulögn ”

230
0
Vog­ar á Vatns­leysu­strönd. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið:

<>

 ” Miðsvæði – Yfirborðsfrágangur  Gangstéttar – Gangstígar – Kantsteinar – Þökulögn ”.

Verkið er fólgið í yfirborðsfrágangi á miðsvæði í Vogum við göturnar Skyggnisholt, Lyngholt og Breiðuholt og felst í m.a. í gerð gangstétta, gangstíga, kantsteins og þökulögn ásamt lítilsháttar lagnavinnu. Er þessu nánar lýst á uppdráttum, í verklýsingu og magnskrá.

Helstu magntölur eru:

Uppúrtekt                          250 m3

Fyllingar                             750 m3

Malbik                              2880 m2

Vélsteyptur kantsteinn      1200 m

Þökulögn                          3500 m²

Verklok skulu vera eigi síðar en 1. september 2021.

Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið sigurdurh@t-sa.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti.

Útboðsgögn verða afhent frá og með fimmtudeginum 8. apríl 2021.

Tilboðum skal skilað í tölvupósti á netfangið sigurdurh@t-sa.is eigi síðar en  miðvikudaginn, 21. apríl 2021 kl. 10:00.

Opnun tilboða fer fram á fjarfundi með „Teams“, fundarkerfi miðvikudaginn 21. apríl 2021, kl. 11:00.

Þeir bjóðendur sem vilja tengjast opnunarfundinum skulu senda beiðni um það á netfangið sigurdurh@t-sa.is eigi síðar en kl. 10:00 á opnunardag tilboða og verður þeim þá sendur hlekkur til að tengjast fundinum.

 

Loading..