Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu á um 2,0 km kafla Örlygshafnavegar (612-03) um Hvallátra.
Helstu magntölur eru:
Bergskeringar 22.000 m3
Fyllingar og fláafleygar 33.400 m3
Ræsalögn 72 m
Styrktarlag 5.440 m3
Burðarlag 2.390 m3
Tvöföld klæðing 12.795 m2
Frágangur fláa 15.000 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 31. mars 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. apríl 2021.
Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.