Home Fréttir Í fréttum Allt á suðupunkti í deilum um byggingar á Kirkjusandi

Allt á suðupunkti í deilum um byggingar á Kirkjusandi

335
0
Á þessari grafísku mynd sést hvernig Kirkjusandur mun líta út þegar öllum framkvæmdum á vegum 105 Miðborgar á reitnum verður lokið. Húsin þrjú sem ÍAV sá um að byggja eru gula húsið fyrir miðri mynd, skrifstofubyggingin vinstra megin við það og íbúðarhúsið aftan við skrifstofubygginguna. Mynd: 105 MIÐBORG

105 Miðborg í stýringu Íslandssjóða hefur ráðið nýjan verktaka til að ljúka framkvæmdum á kirkjusandsreitnum eftir að hafa rift samningi við Íslenska aðalverktaka um byggingu þriggja húsa upp á um tíu milljarða króna.

<>

Miklar byggingaframkvæmdir hafa staðið yfir á gömlu strætólóðinni á Kirkjusandi undanfarin misseri á vegum 105 Miðborgar sérhæfðs sjóðs í rekstri og stýringu Íslandssjóða og hafa Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) séð um framkvæmdirnar.

Sjóðurinn er meðal annars í eigu fjölda lífeyrissjóða.

Deila Íslandssjóða og ÍAV er í algerum hnút. Hún snýst um byggingu þriggja húsa. Tveggja íbúðarhúsa sem eru nánast tilbúin og búið að afhenda og skrifstofubyggingar sem er langt komin.

Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á tíu milljarða og er nú komið í hendurnar á öðrum verktökum.

Í svörum Íslandssjóða við fyrirspurn fréttastofu segir að samningi við Íslenska aðalverktaka hafi verið rift í lok febrúar.

Ekki verði tafir á framkvæmdinni þar sem nú þegar sé búið að fá aðra ónafngreinda verktaka til að ljúka henni.

Deilan snýst um tafir á afhendingu húsanna og lagfæringar sem 105 Miðborg telur að ÍAV eigi að bæta og greiða fyrir.

Kosnaður við byggingu húsanna þriggja sem ÍAV var með samning um er um tíu milljarðar króna. Heildarkostnaður við uppbyggingu á reitnum er hins vegar áætlaður um 22 milljarðar króna.
Mynd: 105 MIÐBORG

Í yfirlýsingu ÍAV segir að fyrirtækið hafi ekki fengið greitt vegna vinnu við verkið frá lokum nóvember í fyrra. Fyrirtækið hafi boðist til að gera samkomulag um lyktir verksamnings í ljósi samstarfsörðugleika án nokkurra skilyrða skömmu áður en verkkaupi ákvað að fara fram á riftun. Því boði hafi verið hafnað.

„Tilgangur með riftuninni virðist því vera sá að valda verktakanum sem mestu tjóni og halda áfram að komast undan greiðslu verkkostnaðar og skuldbindingum þar um.

Við riftun verksamnings hefur ÍAV ekki annan kost en að hætta að efna samninginn af sinni hálfu og leita réttar síns til uppgjörs og bóta,“ segir í yfirlýsingu ÍAV.

Svona mun skrifstofubyggingin líta út þegar henni verður lokið. ÍAV náði að steypa upp hæðir hússins áður en samningi við þá var rift.
Mynd: 105 MIÐBORG

Húsin þrjú sem ÍAV var að byggja eru íbúðahúsin Stuðlaborg og Sólborg og skrifstofubyggingin Sjávarborg. Þau eru aðeins helmingur fyrirhugaðra framkvæmda á kirkjusandsreitnum.

Eftir á að byggja hótel, skrifstofubyggingu og íbúðablokk en samtals hljóða framkvæmdirnar upp á 22 milljarða króna.

Í svari Íslandssjóða til fréttastofu segir að ekki hafi verið samið við aðila um seinni áfanga framkvæmdanna.

Ljóst er að deilum 105 Miðborgar og Íslenskra aðalverktaka er hvergi lokið og munu þær að öllum líkindum enda fyrir dómstólum.

Heimild: Visir.is