Home Fréttir Í fréttum Kynna nýtt 20 þúsund manna hverfi í Reykja­vík

Kynna nýtt 20 þúsund manna hverfi í Reykja­vík

93
0
Hér má sjá Krossamýrartorg sem stendur við Borgarlínuásinn sem liggur í gengum miðju svæðisins. REYKJAVÍKURBORG

Í dag verður bein útsending á vegum Reykjavíkurborgar til að kynna hugmyndir um nýtt 20 þúsund manna hverfi á Ártúnshöfða og við Elliðaárvog.

<>

Útsendingin hófst klukkan 17 og byggist dagskrá á stuttum kynningum fjölmargra sem komið hafa að verkefninu til þessa.

Er fundinum ætlað kynna fyrirætlanir um að breyta gamalgrónu iðnaðarhverfi í lifandi og græna íbúðabyggð áður en deiliskipulag fer í formlegt ferli til að fá fram sjónarmið íbúa og fyrirtækja.

Gert er ráð fyrir að deiliskipulag fari í auglýsingu í apríl og þá tekur við lögbundið ferli, að því er fram kemur í tilkynningu frá borginni.

Dagskrá:

Pawel Bartoszek, formaður skipulagsráðs: Áherslur í uppbyggingu og ferlið framundan

Björn Guðbrandsson, arkitekt hjá Arkís: Höfðinn – nýr borgarhluti í mótun – helstu forsendur og markmið

Páll Gunnlaugsson, arkitekt hjá ASK arkitektum: Krossamýrartorg – nýr kjarni í austurhluta borgarinnar

Sigurbjörg Helga Gunnbjörnsdóttir, skipulagsfræðingur hjá Arkís: Elliðaárvogurinn – borgin við sundin

Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt hjá Landslagi: Grænasti borgarhlutinn – Græn svæði og almenningsrými.

Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri á fagskrifstofu grunnskóla á Skóla-og frístundasviði: Skólahverfið – samspil skóla og umhverfis.

Anna Guðrún Stefánsdóttir, umferðar-og skipulagsverkfræðingur hjá Verkís: Áherslur á blöndun ólíkra ferðamáta.

Fundarstjóri er Birkir Ingibjartsson, verkefnisstjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.

Lögð er áhersla á að svara fyrirspurnum sem sendar verða á netfangið  hofdinn@reykjavik.is hvort heldur sem þær berast fyrir fundinn eða meðan útsending varir.

Nánar má lesa um hverfið á vef borgarinnar.

Heimild: Visir.is