Home Fréttir Í fréttum Óðinsbryggja verður endurbyggð

Óðinsbryggja verður endurbyggð

82
0
Ljósmynd: Gunnar Ingvar Leifsson

Í Vesturhöfn Gömlu hafnarinnar í Reykjavík eru fjórar timburbryggjur. Innri bryggjurnar þrjár kallast Verbúðarbryggjur og eru staðsettar við Kaffivagninn.

<>

Sú fjórða og jafnframt sú ysta, Síldarbryggjan, hefur verið breikkuð og endurbætt á síðustu áratugum.

Óðinsbryggja sem er innsta bryggjan við Sjóminjasafnið hefur fengið lítið viðhald síðustu áratugi og var hún dæmd ónýt árið 2018.

Um síðustu helgi var auglýst útboð á söguðum harðvið og staurum í bryggjuna. Tilboð verða opnuð 1. mars n.k..

önnun bryggjunar eru í höndum verkfræðistofunnar Eflu. Bryggjan mun verða 60 metra löng og sjö metra breið timburbryggja á timburstaurum.

Áætlaður heildarkostnaður er í kringum 120 milljónir, þar af eru efniskaup 45 milljónir. Reiknað er að verkið taki 4-6 mánuði og munu framkvæmdir hefjast á öðrum ársfjórðungi.

Heimild: Faxaflóahafnir.is