Home Fréttir Í fréttum Vilja bæta 26 íbúðum við fjölbýlishús í Reykjanesbæ

Vilja bæta 26 íbúðum við fjölbýlishús í Reykjanesbæ

157
0
Mynd: Sudurnes.net

Eigendur Bogabrautar 960 og 961, Heimstaden 900 ehf. hafa óskað heimildar frá Reykjanesbæ til að fjölga íbúðum í fyrrnefnda húsinu í 36 úr 10 í samræmi við uppdrátt OMR verkfræðistofu.

<>

Á meðal breytinga sem þarf að framkvæma til þess að ná þessum fjölda íbúða er að breyta geymslum og dagrýmum sem fyrir eru í smáíbúðir, segir í umsögn sem fylgdi erindinu.

Málið var rætt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs sveitarfélagsins.

Ráðið telur að gera þurfi grein fyrir bílastæðaþörf á sameiginlegu bílastæði fyrir Bogabraut 960 og 961 og var erindinu því frestað.

Heimild: Sudurnes.net