Home Fréttir Í fréttum Vilja hjúkrunarheimili í uppsveitir Árnessýslu

Vilja hjúkrunarheimili í uppsveitir Árnessýslu

87
0
Húsnæði Háskóla Íslands þar sem íþróttafræðasetur var til húsa stendur meira og minna tómt og því hefur verið rætt um að það gæti hentað vel sem hjúkrunarheimili fyrir uppsveitir Árnessýslu enda á ríkið húsið. Það hefur þó ekkert verið ákveðið með það. Mynd: MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Mikil þörf er að byggingu hjúkrunarheimilis í uppsveitum Árnessýslu og því hafa sveitarfélögin á svæðinu sett á laggirnar vinnuhóp til að koma málinu í gegn. Horft hefur verið til Laugarvatns hvað varðar staðsetningu heimilisins.

<>

Nokkur hjúkrunarheimili eru á Suðurlandi en ekkert í uppsveitum Árnessýslu, sem er vaxandi svæði með töluverðri íbúafjölgun.

Dvalarheimili var á Blesastöðum í Skeiða og Gnúpverjahreppi en því hefur verið lokað.  Sveitarfélögin hafa nú skipað í vinnuhóp, sem mun hittast í fyrsta sinn í vikunni og fara yfir hugmyndir um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í uppsveitunum.

Jón Valgeirsson, sveitarstjóri Hrunamannahrepps á sæti í hópnum.

„Málið snýst um það að það verði í einhverri framtíð komið upp hjúkrunarheimili í uppsveitunum og núna er búið að kanna áhugann og þátttökuna í því og nú eru sveitarfélögin, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð og Grímsnes og Grafningshreppur búin að ákveða að skipa starfshóp til að skoða þetta áfram,“ segir Jón.

En er málið brýnt að mati Jóns?

„Já, það er það, sérstaklega því að þú þarft að hugsa langt fram í tímann varðandi svona mál, við viljum meina að það sé nauðsynlegt að geta boðið upp á þessa þjónustu.“

Einhverjir eru á þeirri skoðun að nú þegar sé til húsnæði undir hjúkrunarheimili eða húsnæði gamla íþróttakennaraháskólans á Laugarvatni, sem stendur meira og minna tómt í dag en þar eru fullt af herbergjum og stór og góður matsalur. Það þurfi bara að semja við ríkið um að taka húsið yfir.

„Það á bara eftir að koma í ljós og ræða staðsetningar og önnur mál, það er allt annað ferli að setjast yfir það. Stóra ákvörðunin er sú að ákveða að það verði byggt hjúkrunarheimili og svo er bara að sjá hvernig húsnæðismálin enda, það er önnur ella og í rauninni hvaða kröfur og hvaða þarfagreining liggur þar að baki“, segir Jón og bætir við að hann sé bjartsýnn á að málið fari vel en það sé langhlaup.

Heimild: Visir.is