Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Sundabakki Ísafirði: Framkvæmdir hafnar við fyrirstöðugarð

Sundabakki Ísafirði: Framkvæmdir hafnar við fyrirstöðugarð

161
0
Frá framkvæmdunum. Mynd: Marzellíus Sveinbjörnsson./bb.is

Framkvæmdir eru hafnar við gerða 460 metra lands fyrirstöðugarðs við Sundabakka á Ísafirði. leggja á út um 11 þúsund rúmmetra af grjóti og sprengdum kjarna.

<>

Tígur ehf frá Súðavík annast verkið og skal vera lokið 1. apríl 2021.

Viðlegukanturinn lengist um 300 metra við framkvæmdirnar og verður 500 metrar alls.

Alls bárust 7 tilboð í verkið. Kostnaðaráætlun var 44 milljónir króna fyrir verktakakostnað. Tígur bauð 38 milljónir króna eða 13% undir kostnaðaráætlun.

Kubbur ehf á Ísafirði var einnig með tilboð undir kotnaðaráætlun, rúmar 42 milljónir króna. Hæsta tilboðið var 63 milljónir króna eða 44% yfir kostnaðaráætlun.

Heimild: BB.is