Vegagerðin hefur boðið út endurbyggingu 1,2 kílómetra kafla Urriðafossvegar. Kaflinn nær frá gatnamótunum á hringveginum við Þjórsárbrú að bílaplani við Urriðafoss.
Samkvæmt teikningum og útboðslýsingu verður fylgt núverandi veglínu en vegurinn styrktur og lögð á hann tvöföld klæðning.
Tilboðsfrestur er til 2. febrúar. Ljóst er að verktaki þarf að vinna rösklega því gert er ráð fyrir verklokum 15. júní 2021, fyrir mitt sumar.

Mynd: VEGAGERÐIN
Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, er bílaplanið sjálft ekki á vegum Vegagerðarinnar heldur borgar Flóahreppur fyrir það. Verður slitlag lagt ofan á það eins og það er núna og er sá hluti inni í útboðinu.
Urriðafoss er neðsti foss Þjórsár og stundum talinn vatnsmesti foss landsins. Þetta er þó skilgreiningaratriði. Sé Selfoss í Ölfusá, við samnefndan bæ, talinn vera foss er hann vatnsmeiri.
Heimild: Visir.is