Home Fréttir Í fréttum Endurtaka útboð í gerð flugvallar á Grænlandi

Endurtaka útboð í gerð flugvallar á Grænlandi

138
0
Yfirlitsmynd af fyrirhuguðum Qaqortoq-flugvelli. KALAALLIT AIRPORTS

Flugvallafélag grænlenskra stjórnvalda, Kalaallit Airports, hefur ákveðið að bjóða út að nýju gerð flugvallar við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands.

<>

Þetta er endurtekning á útboði í fyrra en tilboðin sem þá bárust voru sögð hafa verið öll hátt yfir fjárhagsramma verkefnisins. Íslenski verktakinn Ístak var í hópi bjóðenda, sem valdir höfðu verið að undangengnu forvali.

Sú breyting er gerð frá útboðinu í fyrra að samhliða útboði flugbrautarinnar er einnig boðin út smíði flugvallabygginga, þar á meðal flugstöðvar og flugturns.

Verktakar geta valið um hvort þeir bjóði aðeins í annan hlutann eða allan pakkann. Með þessu fyrirkomulagi vonast yfirvöld til að fá tilboð sem rúmist innan heildarfjárhagsáætlunar, að því er fram kemur í frétt Sermitsiaq.

Tilboðsfrestur rennur út í marsmánuði.

 

Gert er ráð fyrir veglegri 4.300 fermetra flugstöð.
KALAALLIT AIRPORTS

Skoðað var í haust að hafa styttri flugbraut og minni byggingar en niðurstaðan er að engar breytingar verða á umfangi verksins.

Áfram verður miðað við 1.500 metra langa flugbraut, sem hægt verði að lengja í 1.800 metra, og 4.300 fermetra flugstöð, nærri þrefalt stærri en áformað er að reisa á Reykjavíkurflugvelli.

Flugvallagerðin í Qaqortoq verður þriðja risaframkvæmdin í heildaruppbyggingu flugvallakerfis Grænlands, mestu innviðauppbyggingu í sögu landsins.

Byrjað var haustið 2019 á gerð 2.200 metra langrar flugbrautar í Nuuk og í ársbyrjun 2020 var hafist handa við gerð 2.200 metra flugbrautar í Ilulissat við Diskó-flóa. Fylgjast má með framkvæmdum í Nuuk á vefmyndavélum Kalaallit Airports.

Flugvellirnir í Nuuk og Ilulissat fá báðir 2.200 metra flugbraut en Qaqortoq fær 1.500 metra braut, með möguleika á lengingu síðar í 1.800 metra.
GRAFÍK/HAFSTEINN ÞÓRÐARSON.

Flugvellinum í Qaqortoq er ætlað að taka við hlutverki vallarins í Narsarsuaq sem aðalflugvöllur Suður-Grænlands. Staðsetning Narsarsuaq-vallar þykir óhentug gagnvart helstu byggðum landshlutans en þaðan er tveggja tíma sigling á áætlunarbát til Qaqortoq. Nýi flugvöllurinn verður hins vegar aðeins sex kílómetra utan við Qaqortoq-bæ og verður bílvegur á milli.

Framkvæmdirnar snerta flugrekstur Íslendinga sem lengi hafa sinnt áætlunarflugi til þessa næsta nágrannalands Íslands. Þannig eru flugvellirnir í Nuuk, Ilulissat og Narsarsuaq í hópi fimm áfangastaða Air Iceland Connect á Grænlandi.

Núverandi brautir í Nuuk og Ilulissat eru báðar mjög stuttar, um 900 metra langar, og takmarka því flug þangað við litlar vélar sem ráða við stuttar brautir.

Heimild: Visir.is