Home Fréttir Í fréttum Krefst kyrrsetningar á Bræðraborgarstíg eitt og þrjú

Krefst kyrrsetningar á Bræðraborgarstíg eitt og þrjú

169
0
Guðbrandur segir skjólstæðinga sína eiga það sameiginlegt að hafa orðið fyrir verulegu andlegu áfalli vegna brunans. Mynd: VÍSIR/EGILL

Lögmaður þeirra, sem urðu fyrir líkams- eða eignatjóni vegna brunans á Bræðraborgarstíg í sumar og aðstandanda þeirra sem létust, hefur farið fram á kyrrsetningu á Bræðraborgarstíg eitt og þrjú.

<>

Hann segir það gert til að tryggja skaðabótakröfur umbjóðenda sinna gagnvart húseigandanum, sem er fyrirtækið HD verk.

„Ég get staðfest að ég hef lagt fram kyrrsetningarbeiðni og krafist kyrrsetningar á Bræðraborgarstíg eitt og þrjú til tryggingar skaðabótakrafna fyrir hönd umbjóðenda mína sem eru samtals sautján talsins,“ sagði Guðbrandur Jóhannesson, lögmaður fólksins.

Hvers vegna er þetta gert? Eru einhver teikn á lofti um að verið sé að fara að selja húsið?

„Já meðal annars. Mér skilst að það sé komið samþykkt kauptilboð í Bræðraborgarstíg eitt og þrjú en sér í lagi með vísan til afdráttarlausrar niðurstöðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þar sem ábyrgð húseigenda er mikil.“

Fram hefur komið að bótakröfur vegna brunans hlaupi á tugum milljóna.

„Eins og sakir standa í dag þá liggur fyrir matsgerð og þar er hann metinn ósakhæfur og það þýðir með öðrum orðum að þeir umbjóðendur mínir sem hafa orðið fyrir líkamstjóni þeir eiga ekki skaðabótarétt gagnvart ákærða,“ sagði Guðbrandur.

Hvernig líður umbjóðendum þínum í dag?

„Þau hafa verið margir þannig það er margbreytilegt hvernig hverjum og einum líður en þau eru öll enn í áfalli og margir hafa orðið fyrir varanlegu tjóni,“ sagði Guðbrandur.

Heimild: Visir.is