Home Fréttir Í fréttum Þessi brú styttir vesturleiðina til Ísafjarðar um níu kílómetra

Þessi brú styttir vesturleiðina til Ísafjarðar um níu kílómetra

221
0
Brúin kemur milli Þórisstaða og Kinnarstaða. Í forgrunni má sjá hvar núverandi vegur hlykkjast upp á Hjallaháls. Við ströndina neðst til hægri má sjá veglínuna í átt að Teigsskógi. Bjarkalundur er efst til hægri. Mynd: VEGAGERÐIN

Ný brú þvert yfir Þorskafjörð, sem styttir vesturleiðina til Ísafjarðar um níu kílómetra, verður boðin út á evrópska efnahagssvæðinu á næstu dögum.

<>

Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í kringum páska en þetta gæti orðið stærsta útboðsverk Vegagerðarinnar í ár.

Þetta er annar áfanginn sem boðinn er út í endurbyggingu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit en í haust var byrjað á vegagerð í Gufufirði. Í fréttum Stöðvar 2 voru sýndar myndir frá brúarstæðinu.

Horft inn Þorskafjörð. Vaðalfjöll ofarlega til hægri.
Mynd: EGILL AÐALSTEINSSON

Brúun Þorskafjarðar er búin að vera langþráður draumur margra á Vestfjörðum. Margir sáu hylla undir verkið fyrir nokkrum áratugum þegar bráðabirgðavegur var lagður langleiðina yfir fjörðinn í tengslum við lagningu háspennulínu.

Brúin sjálf verður 260 metra löng en lengd útboðskaflans alls um tveir og hálfur kílómetri. Þessi verkhluti nær þó ekki inn í hið umdeilda svæði Teigsskóg, frekar en sá fyrsti, en felur engu að síður í sér mikla samgöngubót.

Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps.
Mynd: EGILL AÐALSTEINSSON

„Þetta er mesta styttingin á allri leiðinni. Þannig að hún mun hafa mjög mikil áhrif. Og þetta eru eiginlega sú framkvæmd sem við höfum svona barist fyrir að yrði tekin snemma í ferlinu vegna styttingarinnar,“ segir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps.

Til undirbúnings útboðinu rannsökuðu Vegagerðarmenn botninn við fyrirhugað brúarstæði sem og heppilega staði til grjótnáms.

Að sögn Sigurþórs Guðmundssonar, verkefnisstjóra hjá Vegagerðinni, er fyrirhugað að auglýsa útboðið í næstu viku og stefnt að því framkvæmdir hefjist í kringum páska, um mánaðamótin mars-apríl.

Íbúar í Gufudal fagna því að fá níu kílómetra styttingu.

Jóhanna Ösp Einarsdóttir, tómstundafulltrúi í Fremri-Gufudal.
Mynd: EGILL AÐALSTEINSSON

„Þannig að það er hellingsstytting, bara fyrir Vestfirðinga,“ segir Jóhanna Ösp Einarsdóttir, tómstundafulltrúi í Fremri-Gufudal.

„Það eru mörg börn sem búa í Gufudalssveit og það búa börn í Djúpadal. Þessi aðgerð mun stytta leiðina fyrir börn á leið í skóla, fram og til baka á hverjum degi.

Svo er líka bara starfsfólk Reykhólahrepps. Það býr alla leið út á Skálanes. Það mun njóta þessarar framkvæmdar,“ segir sveitarstjórinn.

Áætlað er að verkið kosti vel á þriðja milljarð króna og vonast Vegagerðarmenn til að brúin verði tilbúin vorið 2024.

Heimild: Visir.is