Home Fréttir Í fréttum Eyja­menn byggja og byggja

Eyja­menn byggja og byggja

177
0
Bogi Rún­ars­son, Óðinn Sæ­björns­son, Jó­hann Sveinn Sveins­son, Sveinn Sveins­son ogG­unn­ar Guðjóns­son, starfs­menn Steina og Olla, sem er að reisa fjöl­býl­is­hús í gamla Ísfé­lags­hús­inu. Mynd: mbl.is/Ó​skar Pét­ur Friðriks­son.

Í dag eru 48 íbúðir í smíðum í Vest­manna­eyj­um og alls hafa 68 nýj­ar íbúðir verið tekn­ar í notk­un þar síðustu fimm árin.

<>

Auk þess er búið að út­hluta lóðum fyr­ir 15 til 20 íbúðir sem munu rísa á næstu miss­er­um og árum. Allt selst jafnóðum og ber vott um sterka stöðu Vest­manna­eyja.

Auk þessa fjár­festa sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­in grimmt þannig að mikið hef­ur verið að gera hjá iðnaðarmönn­um und­an­far­in ár. At­vinnu­ástand er yf­ir­leitt gott nema í ferðaþjón­ustu sem þó hef­ur sloppið nokkuð vel miðað við mörg sveit­ar­fé­lög.

Miðað við al­mennt at­vinnu­leysi voru 129 á skrá í Vest­manna­eyj­um í nóv­em­ber sl. eða 5,3% fólks á vinnu­markaði. Er það með því lægsta á land­inu en landsmeðaltal var 10,2% og á Suður­landi 9,3%.

Þótt at­vinnu­leysi sé lítið á landsvísu telst það mikið í Vest­manna­eyj­um þar sem meðal­at­vinnu­leysi er 2,5% frá alda­mót­um.

Frétta­rit­ari og ljós­mynd­ari Morg­un­blaðsins í Eyj­um tóku stöðuna á nokkr­um aðilum sem koma að upp­bygg­ing­unni um þess­ar mund­ir.

Ný slökkvistöð og níu íbúða kjarni fyr­ir fatlaða

Vest­manna­eyja­bær stend­ur í um­tals­verðum fram­kvæmd­um á tvenn­um víg­stöðvum. Ann­ars veg­ar er það ný 600 fer­metra slökkvistöð sem er viðbygg­ing við Þjón­ustumiðstöð bæj­ar­ins við Heiðar­veg.

Hins veg­ar þjón­ustu­íbúðir fyr­ir fatlaða við Strand­veg sem eru hluti íbúða- og þjón­ustukjarna sem rís á grunni skrif­stofu Ísfé­lags­ins sem reis um miðja síðustu öld og hef­ur sett svip á Strand­veg­inn í Eyj­um.
Heimild: Mbl.is