Home Fréttir Í fréttum Jöfnuðu hótel Holi­day Inn við Was­hington DC við jörðu

Jöfnuðu hótel Holi­day Inn við Was­hington DC við jörðu

99
0
Byggingin var í hverfinu Rosslyn í Virginíu.

Hótel Holiday Inn í Rosslyn í Virginíu, við jaðar bandarísku höfuðborgarinnar Washington DC, var jafnað við jörðu á sunnudaginn.

<>

Stórt svæði var girt af umhverfis hótelið sem var sprengt klukkan átta að morgni.

Byggingin stóð við 1900 Fort Myer Drive, var átján hæða og bauð upp á útsýni yfir bandarísku höfuðborgina. Hótelið opnaði árið 1972.

Ekki stendur til að reisa annað hótel á reitnum heldur segir í bandarískum fjölmiðlum að þar muni rísa íbúða- og verslunarrými.

Sjá má myndband af sprengingunni að neðan.

https://www.facebook.com/WUSA9/videos/144625507133483

Heimild: Visir.is