Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Mosfellsbær undirritaðar verksamning við Karina ehf um samgöngustíg og endurnýjun ræsis í...

Mosfellsbær undirritaðar verksamning við Karina ehf um samgöngustíg og endurnýjun ræsis í Ævintýragarði

226
0
Samgöngustígur og endurnýjun ræsis í Ævintýragarði

Á næstu dögum verður undirritaður verksamningur við Karina ehf, að undangengdu útboði, um samgöngustíg og endurnýjun ræsis í Ævintýragarði.

<>

Um er að ræða að leggja 1700 m langan og 5 metra breiðan samgöngustíg frá Brúarlandi í gegnum Ævintýragarðinn í Mosfellsbæ að Tunguvegi, þar með talið niðursetningu 2ja brúa yfir Varmá annarsvegar og Köldukvísl hinsvegar.

Einnig er um að ræða endurnýjun á 600 mm skolplögn (varmárræsi) á um 220 m kafla vestan Varmár neðan gervigrasvallar. Að auki verður endurgerður reiðstígur sem grefst í sundur vegna framkvæmda við skolplögn.

Áætluð verklok eru 15. ágúst 2021

Heimild: Mosfellsbaer.is