Strandabyggð óskar eftir tilboðum í neðangreint verk.
Helstu verkþættir:
· Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn.
· Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu þekju.
· Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 813 m².
· Koma fyrir rafmagnskassa og vatnsbrunn á bryggjunni.
Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 1. júlí 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 30. nóvember 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 15. desember 2020.
Sérstakur opnunarfundur verður ekki haldinn, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildar tilboðsupphæð.