Home Fréttir Í fréttum 11.12.2020 Göngu- og hjólastígur meðfram Vatnsleysustrandarvegi

11.12.2020 Göngu- og hjólastígur meðfram Vatnsleysustrandarvegi

298
0
Mynd: Haraldur Guðjónsson / vb.is

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið:

<>

Göngu- og hjólastígur meðfram Vatnsleysustrandarvegi

Verk þetta felst í gerð malbikaðs göngu- og hjólastígs sem byrjar við gatnamót á Vogavegi í Vogum og liggur svo meðfram Vatnsleysustrandarvegi.

Heildarlengd stígs er um 2470 m. Er verkinu nánar lýst á uppdráttum, verklýsingu og magnskrá.

Helstu magntölur eru:

Uppúrtekt               4200 m3

Fyllingar                 5600 m3

Malbik                    6375 m2

Verklok skulu vera eigi síðar en 21. maí 2021.

Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vogar.is eða hringja í síma 440 6200 og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti.

Útboðsgögn verða afhent frá og með föstudeginum 27. nóvember 2020.

Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en föstudaginn 11. desember 2020, kl. 10:30. Opnun tilboða fer fram á fjarfundi með „Teams“, fundarkerfi 11. desember 2020, kl. 11:00.

Þeir bjóðendur sem vilja tengjast opnunarfundinum skulu senda beiðni um það á netfangið skrifstofa@vogar.is og verður þeim þá sendur hlekkur til að tengjast fundinum.