Home Fréttir Í fréttum Stórt gjaldþrot starfsmannaleigu – Eru til rannsóknar hjá héraðssaksóknara

Stórt gjaldþrot starfsmannaleigu – Eru til rannsóknar hjá héraðssaksóknara

680
0
Byggingarvinna. Mynd: Andri Marinó. Mynd tengist frétt ekki.

Einkahlutafélagið Ztrong Balkan, sem var með aðsetur í Síðumúla, fór í þrot síðastliðið vor, aðeins rúmu ári eftir að félagið hóf starfsemi.

<>

Lýstar kröfur í búið voru um 155 0g hálf milljón. Engar eignir fundust í búinu upp í kröfur.

Skiptastjóri var Sigurbjörn Magnússon lögmaður. Segir hann í svari við fyrirspurn DV að um starfsmannaleigu hafi verið að ræða. Fyrirsvarsmaður hennar var Sverrir Halldór Ólafsson.

Sigurbjörn segir í svari sínu:

„Fyrirsvarsmaður félagsins, Sverrir Halldór Ólafsson, lýsti því yfir að um væri að ræða verktakafyrirtæki en réttara væri að lýsa félaginu sem starfsmannaleigu.

Félagið sendi starfsmenn á sínum vegum í ýmis byggingaverkefni á höfuðborgarsvæðinu.

Stærð gjaldþrotsins skýrist einkum af því að nokkur fjöldi erlendra starfsmanna var á launaskrá félagsins en félagið stóð ekki í skilum á opinberum gjöldum og iðgjöldum í lífeyrissjóð o.fl. vegna þeirra og er það mál nú til skoðunar hjá héraðssaksóknara.“

Heimild: DV.is