Vegagerðin óskar eftir tilboðum í uppsetningu á fenderum í Landeyjahöfn.
Helstu magntölur:
· Viðgerð á steyptum kantbita
· Niðurrekstur á burðarstaurum fyrir fendera
· Uppsetning á 6 staurafenderum
Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 15. mars 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 23. nóvember 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 8. desember 2020.
Sérstakur opnunarfundur verður ekki haldinn, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildar tilboðsupphæð.