Héraðsdómur Reykjaness hefur úrskurðað að bú félagsins Stuðmenn ehf. skuli tekið til gjaldþrotaskipta.
Hólmgeir El. Flosason lögmaður er skiptastjóri búsins.
Fyrirtækið Stuðmenn ehf. var stofnað í október 2016.
Tilgangur félagsins var rekstur rafverktakafyrirtækis, innflutningur raflagnaefnis og þjónusta varðandi nýlagningu og viðhald raflagna og tengist á engan hátt hljómsveit með sama nafni.
Heimild: Mbl.is