Home Fréttir Í fréttum Skipulag borgarinnar hafnar stórbyggingu á Miðbakka

Skipulag borgarinnar hafnar stórbyggingu á Miðbakka

162
0
Teikningar : Yrki arkitektar

Áform um byggingu rúmlega þrjátíu þúsund fermetra fjölnota húss á Miðbakka Reykjavíkurhafnar eru strand eftir að skipulag borgarinnar hafnaði hugmyndinni.

<>

Áætlaður kostnaður við fjárfestinguna er um fjörtíu milljarðar króna.

Vincent Tan fjárfestirinn frá Malasíu sem nýlega keypti öll Icelandair hótelin á einnig vöruskemmuna á Miðbakka.

Hann er með stórar hugmyndir um að byggja fjölnota hús á Miðbakka, þrjátíu og þriggja þúsund fermetra hús, sem meðal annars ætti að hýsa fimm stjörnu hótel Four Season hótelkeðjunnar. En Faxaflóahafnir eiga lóðina.

Hér sést hvernig skemmtiferðaskip við Miðbakka gæti legið meðfram byggingunni og í henni væri aðstaða til tollskoðunar fyrir erlenda ferðamenn.

Yrki arkitektar reifuðu hugmyndina fyrir hönd Tan og sendu fyrirspurn til skipulags Reykjavíkurborgar í maí sem síðan sendi hana áfram til umsagnar til Faxaflóahafna.

Þaðan fengust þau svör að bygging af þessu tagi sem myndi leggja undir sig stóran hluta Miðbakkans rúmaðist ekki innan skipulags og nýtingar hafnarbakkans sem almenns opins svæðis.

Að þeirri umsögn fenginni gaf skipulagið síðan neikvætt svar á fundi sínum á föstudag fyrir viku. Tryggvi Þór Herbertsson stjórnarformaður Icelandair hótela segir hótelsamsteypu Tan hafa um 40 milljarða til að setja í húsið.

Gert er ráð fyrir opnu svæði sem liggi í gegnum bygginguna með alls kyns þjónustu á jarðhæð.

„Það verði í því 150 og fimmtíu herbergja hótel og þjónustuíbúðir sem yrðu reknar af hótelinu. Það yrði mótttaka fyrir skemmtiferðaskip, verslanir, þjónusta og veitingastaðir og opin svæði til að tengja betur hafnarbakkann við miðborgina og opna þetta betur fyrir almenningi,“ segir Tryggvi Þór.

Tryggvi Þór Herbertsson stjórnarformaður Icelandair hótela segir sérstaklega hafa verið horft til Miðbakkans vegna þess að staðsetning fimm stjörnu hótela skipti höfuðmáli.
STÖÐ 2/ARNAR

Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn hefur gagnrýnt að svo stórt mál skuli ekki hafa verið tekið upp á stjórnarfundi Faxaflóahafna og stjórnarformaðurinn ákveðið að bera ein ábyrgð á svörum við fyrirspurn Yrkis arkitekta. Tryggvi Þór segir staðsetninguna skipta mikilu máli fyrir fimm stjörnu hótel.

Svona gæti fjölnota byggingin litið út fullkláruð.

„Hugmyndin var að Four Seasons yrði með þetta hótel og þeir voru búnir að skoða þessa staðsetningu. Það er ekki hægt að fara með þetta eitthvað út í buskann.“

Bindur þú ennþá vonir við að málið komist áfram í kerfinu?

„Eins og þetta lítur út núna ídag sýnist mér það vera strand,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson.

Tengd skjöl

Heimild: Visir.is