Home Fréttir Í fréttum Þá er vinna hafin við fyrsta áfanga hafnarframkvæmda í Þorlákshöfn

Þá er vinna hafin við fyrsta áfanga hafnarframkvæmda í Þorlákshöfn

113
0
Þórlákshöfn

Þá er vinna hafin við fyrsta áfanga hafnarframkvæmda í Þorlákshöfn. Þessi fyrsti áfangi felst í dýpkun hafnarinnar, bæði vegna löngu tímabærrar viðhaldsdýpkunar en líka stofndýpkun.

<>

Um helgina fór dráttarbátur Sveitarfélagsins Ölfuss til Akraness þar sem hann sótti dráttarbát sem sér um framkvæmdina og var hann kominn til Þorlákshafnar á laugardagsmorgun. Vinna við dýpkun hófst síðan á mánudagsmorgun og er reiknað með að verkinu ljúki í nóvember.  Í þessum fyrsta áfanga verður allt laust efni fjarlægt og er reiknað með að fjarlægja um 80.000 rúmmetra af efni. Með því næst meira dýpi en nokkurn tíma hefur verið í höfninni eða dýpi að lágmarki 8 metrar. Aukið dýpi eykur nýtingamöguleika hafnarinnar og gerir hana mun öruggari.

Í næsta áfanga sem unninn verður á næsta ári, verður það sem eftir ef af Norðurvarargarði sprengt og efnið fjarlægt.

Heimild: Ölfus.is