Home Fréttir Í fréttum Byggja lúxus­hótel í Eyja­firði: „Bjart­sýnir fyrir fram­tíð Ís­lands“

Byggja lúxus­hótel í Eyja­firði: „Bjart­sýnir fyrir fram­tíð Ís­lands“

433
0
Svona mun hótelið líta út þegar það verður tilbúið. Mynd: AÐSEND

Félagarnir Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein, fyrrverandi landsliðsmenn á skíðum og eigendur Viking Heliskiing og Scandic Guides, hafa ákveðið að hefja byggingu á lúxushóteli rétt við Grenivík í Eyjafirði.

<>

Ferðamannaiðnaðurinn hefur tekið mikla dýfu undanfarna mánuði frá því að kórónuveirufaraldurinn barst hingað til lands en Björgvin segir þá félaga bjartsýna á að fólk verði byrjað að ferðast aftur þegar hótelið verður tilbúið, en stefnt er að opna það í árslok 2022.

„Við erum bara bjartsýnir fyrir framtíð Íslands og viljum meina að þetta sé góð tímasetning að byrja framkvæmdum,“ segir Björgvin í samtali við fréttastofu.

Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein hefja byggingu á lúxushóteli á Þengilhöfða í Eyjafirði næsta vor.
Mynd: AÐSEND

„Það er enn fólk í dag að bóka ferðir hjá okkur og eftir svona langan tíma hef ég trú á því að við verðum búin að gleyma þessari veiru.“

Hótelið hefur fengið heitið Höfði Lodge og verður það 5.500 fermetrar að stærð og verða fjörutíu herbergi þar fyrir gesti. Þá verður bar, veitingastaður, heilsurækt, funda- og ráðstefnusalur og önnur þjónursta.

Hótelið mun rísa fyrir ofan fimmtíu metra háan klettavegg á Þengilhöfða sem gengur út í austanveran Eyjafjörðinn. Björgvin segir þá félaga hafa fundið besta staðinn í Evrópu til að reisa hótel.

Fyrsta skóflustungan að hótelinu var tekin á dögunum.
Mynd: AÐSEND

„Ég er frá Dalvík og Jóhann er frá Reykjavík. Við teljum að við höfum fundið besta stað á Íslandi og í Evrópu með útsýni yfir sjó, á fimmtíu metra háum kletti. Þetta er bara eins og við sáum fyrir þegar við ákváðum þetta fyrir sex árum síðan.“

Þeir Jóhann eru að sögn Björgvins stærstu fjárfestarnir í verkefninu en þeir eru einnig í samstarfi við erlenda fjárfesta. Stefnt er að því að hefja byggingaframkvæmdir næsta vor en Björgvin sagðist ekki geta greint frá því hvað verkefnið mun kosta að svo stöddu.

Heimild: Visir.is