Bygging svefnskála á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar.
Áframhaldandi uppbygging svefnaðstöðu á öryggissvæði Keflavíkurflugvalllar. Landhelgisgæslan annast daglegan rekstur öryggissvæðanna í umboði utanríkisráðuneytis.
Verkefnið felst í byggingu tveggja svefnskála með samtals 50 svefnplássum ásamt stoðrýmum.
Skálarnir verða staðsettir samkvæmt deiliskipulagsskilmálum fyrir reiti nr. 9 og 11 við Þjóðbraut á Keflavíkurflugvelli.
Svefnskálarnir verða í daglegum rekstri Landhelgisgæslunnar.
Svefnskálarnir eru ætlaðir erlendum liðsafla sem dvelur tímabundið á Íslandi. Þeir eru brýn viðbót við skála sem þegar eru á öryggissvæðinu.
Til stendur að fjölga svefnplássum í 300 talsins fram til ársins 2024.
Alútboð vegna svefnskálanna var auglýst í maí 2020. Alútboðsgögn voru afhent 3. júní, en skilafrestur tilboða rann út 18. september.
Fjórir verktakar voru valdir til þátttöku í alútboðinu og bárust tilboð frá þeim öllum, það lægsta frá Alverki ehf.
Var tilboði fyrirtækisins tekið og samningur þar að lútandi undirritaður í október 2020.
Áætlað er að svefnskálarnir verði teknir í notkun í desember 2021.
Heimild: Fsr.is