Home Fréttir Í fréttum 17.11.2020 Reykjavíkurborg. Gullborg – Færanlegar kennslustofur

17.11.2020 Reykjavíkurborg. Gullborg – Færanlegar kennslustofur

275
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:

<>

Gullborg – Færanlegar kennslustofur, Alútboð nr. 15025

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Við leikskólann Gullborg á að smíða og fullgera og setja niður tvær færanlegar stofur ásamt tengibyggingu.  u.þ.b. 217,7m².

Leikskólinn skal vera byggður úr timbri á stálbitum.  Hverja húseiningu á að vera hægt að flytja í heilu lagi og setja niður á lóðina og tengja saman.  Væntanlegur verktaki mun fullhanna kennslustofur og afhenda stofurnar fullbúnar á lóð leikskólans Gullborgar á Rekagranda, í Reykjavík.

Nánari lýsingu og útskýringar er að finna í útboðsgögnum á vef Reykjavíkurborgar.
Lok framkvæmda: 15. maí 2021.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00 þann 21. október 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is   Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 17. nóvember 2020.