Home Fréttir Í fréttum Fallið frá hug­myndum um mis­læg gatna­mót

Fallið frá hug­myndum um mis­læg gatna­mót

151
0
Svona er ætlunin að gatnamóti Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar komi til með að líta út. REYKJAVÍKURBORG

Fallið hefur verið frá hugmyndum um að ráðast í framkvæmd mislægra gatnamóta á mótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar.

<>

Þess í stað felur ný útfærsla í sér brú og ljósastýrð vegamót sem eigi að hafa minna rask í för með sér.

Á vef Vegagerðarinnar segir að nýja útfærslan feli í sér ljósastýrð vegamót sem þó taki mið af landfræðilegum aðstæðum en stefnt er á að útboð verði á næsta ári.

Með þessari leið er ætlunin að hljóðvist muni batna fyrir nálægar íbúðir í Fellahverfi. Breytt útfærsla hafi ennfremur ekki áhrif á fyrirhugaðan Vetrargarð í Breiðholti og bæti samgöngur gangandi og hjólandi.

„Gert er ráð fyrir að Arnarnesvegur fari á brú yfir Breiðholtsbraut en mæti götunni í plani á ljósastýrðum gatnamótum.

Gatnamótin verða með þessari lausn ekki eins landfrek og inngrip í landslag og jarðrask og efnisflutningar verða mun minni en í öðrum mögulegum lausnum.

Þá verður með brúnni til góð leið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur milli Elliðaárdals, Seljahverfis og efri byggða Kópavogs,“ segir á vef Reykjavíkurborgar.

REYKJAVÍKURBORG

Hávaði undir viðmiðunarmörkum

Gert er ráð fyrir að hljóðvist verði undir viðmiðunarmörkum vegna smíði 1,5 metra hás hljóðveggs á brú og rampa við Breiðholtsbraut auk endurbættrar hljóðmanar milli nýrra gatnamóta og undirganga milli Jaðarsels og Suðurfells.

„Sú lausn sem sátt er um að vinna áfram felst í hringtorgi við Vatnsendahvarf, einni brú yfir Breiðholtsbraut fyrir akreinar og stíga, og tengingu við Breiðholtsbraut með umferðarljósum.

Núverandi ljósastýrð vegamót við Vatnsendaveg verða felld niður en þó verða þar leyfðar hægribeygjur.

Þessi lausn skapar aukið rými við skíðabrekku í Reykjavík miðað við þær lausnir sem samþykktar voru í mati á umhverfisáhrifum og tekur jafnframt minna rými norðan Breiðholtsbrautar.

Munur á tillögunni nú og þeirri sem samþykkt var í matsferlinu er því að ekki er um fullbúin mislæg vegamót að ræða heldur ljósastýrð vegamót,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

Arnarnesvegur (411) flokkast sem stofnvegur í umsjá Vegagerðarinnar, en Arnarnesvegur er hluti af samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem sveitarfélögin á svæðinu og Vegagerðin standa í sameiningu að.

Heimild: Visir.is