Home Fréttir Í fréttum 08.10.2020 Hrunamannahreppur. Gröf gatnagerð 2020

08.10.2020 Hrunamannahreppur. Gröf gatnagerð 2020

371
0

Verkið felur í sér gerð á nýjum götum við Gröf á Flúðum í Hrunamannahreppi.

<>

Verktaki skal jarðvegsskipta götur og stíga samkvæmt kennisniðum og leggja styrktarlag, burðarlag og malbik á stíga og götur.

Verktaki skal einnig leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, ljósleiðaralagnir, ljósastauralagnir, setja upp ljósastaura og aðstoða við lagningu rafveituveitulagna.

Einnig skal malbika yfirlag á Hvammsveginn frá Hrunamannavegi út fyrir Reynihlíð.

Verklok eru 15. júlí 2021.

Helstu magntölur eru:

Gröftur                                         2375 m³

Styrktarlag og fylling í lagnaskurði 4775 m³

Malbik                                          4920 m²

Fráveitulagnir                                 610 m

Vatnsveitulagnir                              475 m

Hitaveitulagnir                              1060 m

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum 22. september 2020. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Bárð Árnason hjá Eflu Suðurlandi í síma 412 6900, eða með tölvupósti á netfangið ba@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Hrunamannahrepps Akurgerði 6, 845 Flúðir fyrir kl. 11:00 fimmtudaginn 8. október 2020, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

 

Sveitarstjórinn í Hrunamannahreppi