Umhverfissvið Mosfellsbæjar, Veitur ohf, Míla ehf og Gagnaveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í verkið: Brattahlíð – Gatnagerð og veitur
Verkið felur í sér gatnagerð á nýjum botnlanga Bröttuhlíðar 24-34 ásamt tilheyrandi veitum undir götu og að hluta utan götu.
Helstu magntölur:
Uppgröftur og endurfylling/brottakstur 1.000 m3
Aðflutt fylling 1.300 m3
Skurðsnið/strengjaskurðir 345 m
Fráveitulagnir 150-300mm 113 m
Hitaveitulagnir 147 m
Vatnsveitulagnir 50 m
Jarðstrengir 460 m
Ljósastólpar 2 stk
Verkinu skal að fullu lokið 15. janúar 2021.
Í ljósi samkomutakmarkana verða útboðsgögn afhent rafrænt til þeirra sem þess óska, í netfangið mos@mos.is, Þjónustuver Mosfellsbæjar, frá og með kl. 11:00 á þriðjudeginum 15. september 2020.
Tilboðum skal skilað með sama hætti, í netfangið mos@mos.is, eigi síðar en fimmtudaginn 1. október 2020 kl. 11:00 og þau opnuð á rafrænum opnunarfjarfundi að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.