Home Fréttir Í fréttum Samið um hönnun íþróttamannvirkja á Jaðarsbökkum á Akranesi

Samið um hönnun íþróttamannvirkja á Jaðarsbökkum á Akranesi

498
0
Þannig myndi íþróttasvæðið á Jaðarsbökkum líta út eftir að fyrsta áfanga verksins verður lokið. Teikning: ASK arkitektar.

Síðastliðinn fimmtudag var skrifað undir samning milli Akraneskaupstaðar og Ask arkitekta um hönnun nýrra íþróttamannvirkja á Jaðarsbökkum.

<>

Það voru Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi og Páll Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Ask arktitekta, sem undirrituðu samninginn.

Í honum felst hönnun nýrra íþróttamannvirkja að Jaðarsbökkum, sem byggð er á vinnu starfshóps sem hefur unnið að málinu frá 2016.

Forteikningar voru kláraðar 2019 og á þeim mun hönnun Ask arkitekta byggja.

Stefnt er að því að hönnun verði lokið í febrúar 2021 og verkið þá tilbúið til útboðs.

Eins og greint var frá í Skessuhorni á sínum tíma er áformað að nýtt íþróttahús með öllu tilheyrandi rísi milli Akraneshallar og núverandi íþróttamiðstöðvar á Jaðarsbökkum.

Þar sem núverandi íþróttasalur er verði byggð sundhöll með átta brautum.

Íþróttamannvirkin á Jaðarsbökkum verða öll samtengd og einn inngangur að öllu íþróttasvæðinu.

Nýtt íþróttahús verður fyrsti áfangi uppbyggingarinnar.

Sjá nánar í Skessuhorni sem kom út í dag.

Heimild: Skessuhorn.is