Suðurnesjabær óskar eftir tilboðum í verkið:„Gerðaskóli – Stækkun 2020“.
Verkið felst í að byggja 1.260 m² viðbyggingu við Gerðaskóla, Garðbraut 90, Garði, Suðurnesjabæ.
Um er að ræða steypt hús á tveimur hæðum. Í þessum áfanga verður viðbyggingin öll fullfrágengin að utan en um 360 m² fullfrágengnir að innan.
Helstu magntölur og stærðir eru eftirfarandi:
Gólfflötur 1.260 m²
Steypa 650 m³
Járn 55 tonn
Mót 3890 m²
Þakflötur 780 m²
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 6. ágúst 2021.
Útboðsgögn (á tölvutæku formi eingöngu) verða send þeim er þess óska með tölvupósti frá og með fimmtudeginum 10. september n.k..
Umsóknir um útboðsgögn skulu sendar á netfangið vs@vss.is.
Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Suðurnesjabæjar, Sunnubraut 4, Garði, mánudaginn 28. september n.k. kl. 11.00, að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Fyrirspurnir varðandi einstaka liði skulu send á netfangið bg@vss.is innan þess frests sem fram kemur í útboðslýsingu.