Tilboð opnuð 28. júlí. Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í endurlögn 6,7 km kafla Kjósarskarðsvegar frá Fremri Hálsi að Þingvallavegi.
Helstu magntölur eru:
Fyllingar og fláafleygar 43.600 m3
Skeringar 39.400 m3
Þar af bergskeringar við veg 7.100 m3
Bergskering í námu 29.000 m3
Efnisvinnsla 35.000 m3
Neðra burðarlag 24.000 m3
Efra burðarlag 9.700 m3
Klæðing 43.500 m2
Frágangur fláa 70.000 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. nóvember 2016.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Ístak – Ísland, Mosfellsbæ | 287.163.053 | 133,6 | 73.063 |
Skagfirskir verktakar ehf., Sauðárkróki | 245.088.500 | 114,0 | 30.989 |
Vörubifreiðastjórafélagið Mjölnir, Selfossi | 235.397.000 | 109,5 | 21.297 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 233.701.000 | 108,7 | 19.601 |
Áætlaður verktakakostnaður | 215.000.000 | 100,0 | 900 |
Þróttur ehf., Akranesi | 214.100.000 | 99,6 | 0 |