Home Fréttir Í fréttum Ístak með lægra boðið í breikkun á Kjalarnesi

Ístak með lægra boðið í breikkun á Kjalarnesi

410
0
Fyrsti kaflinn sem verður breikkaður í 2+1 veg er fjögurra kílómetra langur milli Varmhóla og Vallár. STÖÐ 2/SKJÁSKOT.

Aðeins tvö tilboð bárust í breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes en þau voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag.

<>

Lægra boðið, upp á 2.305 milljónir króna, átti Ístak, og var það fjórum prósentum yfir kostnaðaráætlun upp á 2.226 milljónir króna.

Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2.

Hitt tilboðið var sameiginlegt boð Suðurverks og Loftorku, upp á 2.587 milljónir króna, eða sextán prósentum yfir kostnaðaráætlun.

Í þessum fyrsta áfanga á að breikka fjögurra kílómetra kafla frá Varmhólum að Vallá í 2+1 veg með aðskildum akbrautum.

Jafnframt á að gera hringtorg við Móa og tvenn undirgöng, við Varmhóla og Saltvík, en einnig hliðarvegi, áningarstað og stíga.

Verkið var boðið út á evrópska efnahagssvæðinu og er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna og Gagnaveitu Reykjavíkur.

Því skal að fullu lokið vorið 2023.

Heimild: Visir.is