Home Fréttir Í fréttum Ný slökkvistöð í grenndarkynningu í Vestmannaeyjum

Ný slökkvistöð í grenndarkynningu í Vestmannaeyjum

182
0
Slökkvilid Vestmannaeyja Mynd: Tigull.is

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á mánudaginn var tekin fyrir umsókn um byggingarleyfi fyrir nýja slökkvistöð.

<>

Fram kemur í fundargerðinni að Ólafur Þór Snorrason fh. Vestmannaeyjabæjar sæki um leyfi fyrir stækkun Þjónustumiðstöðvar á Heiðarvegi 14.

Um er að ræða viðbyggingar og breytingar sem auglýstar hafa verið í deiliskipulagstillögu athafnasvæðis AT-1 sl. sumar.

Framkvæmdin sem um er sótt telur nýja 750 fm. slökkvistöð, nýtt stigahús og inngang við austurhlið og innanhúsbreytingar í eldra húsnæði í samræmi innsend gögn.

Í afgreiðslu ráðsins segir að skipulagsráð samþykki með tilvísan til skipulagslaga að framlögð gögn verði grenndarkynnt lóðarhöfum á Heiðarvegi 11, 13, 15, 19. Vestmannabraut 73. Faxastíg 36. Græðisbraut 1 og 2 og lóðarhöfum á Flötum 19, 21 og 22.

Hér má sjá teikningar af byggingunni.

Heimild: Tígull.is