Home Fréttir Í fréttum Grassteinn lagður í tæplega þúsund fermetra bílastæði

Grassteinn lagður í tæplega þúsund fermetra bílastæði

340
0
Mynd: Skessuhorn.is

Sífellt er unnið að umhverfisbótum á Breiðinni á Akranesi. Í morgun var byrjað að leggja 940 fermetra af svokölluðum grasstein í nýtt bílastæði fyrir gesti Akranesvita.

<>

Áætlað er að verkinu verði lokið fyrir helgi. Í holurnar í steininum verður settur sandur og mold þar sem gróður mun vaxa í tímans rás.

Það er fyrirtækið Íslandsgámar sem er verktaki við þessar framkvæmdir, en hér er Ingólfur Valdimarsson á lyftaranum að leggja steininn með sérstökum búnaði. Hilmar Sigvaldason vitavörður fylgist með.

Heimild: Skessuhorn.is